Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Íþróttir

Grindavíkurstúlkur þurfa að fara í úrslitaleik við Hauka
Grindavíkurstúlkur náðu ekki að fylgja eftir sigrum í tveimur fyrstu leikjunum en eiga einn möguleika eftir í fimmta leik liðanna. VF-mynd/eyþór.
Laugardagur 9. apríl 2016 kl. 07:00

Grindavíkurstúlkur þurfa að fara í úrslitaleik við Hauka

Grindavíkurstúlkur náðu ekki að klára einvígið við KR í kvöld en æsispennandi leikkur liðanna endaði með sigri gestanna 60-63. Það verður því hreinn úrslitaleikur hjá liðunum um hvort þeirra fer í úrslitin.

Leikurinn var mjög jafn allan tímann en Haukar eru með Helenu Sverrisdóttur, bestu körfuboltakonu landsins en hún skoraði 32 stig og tók 8 fráköst og munar um minna. Hjá Grindavík átti Sigrún S. Ámundadóttir frábæran leik og skoraði 20 stig. Petrúnella Skúladóttir skoraði 12 og Whitney M. Fraxier 10.

Körfuboltasérfræðingarnir á karfan.is orða þetta skemmtilega fyrir lokaleik þessara liða:
„Oddaleikur liðana er á mánudag að Ásvöllum og sem fyrr segir Haukar aftur komnar í kjörstöðu en Grindavíkurliðið liggur eftir sært eftir að hafa komið sér í vænlega stöðu í einvíginu. En það er alltaf talað um að særð ljón sé þau hættulegustu og hugsanlega fara Grindavíkurstúlkur ekki bara særðar heldur pressulausar í næsta leik. Þær hafa jú unnið þar áður og ættu því alveg að getað endurtekið þann leik. Eitt er allavega víst að hart verður barist í þeim leik og ættu fáir unnendur körfuboltans að láta slíkt fram hjá sér fara.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn