Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindavíkurstúlkur enn á sigurbraut
Föstudagur 22. október 2004 kl. 03:11

Grindavíkurstúlkur enn á sigurbraut

Grindavíkurstúlkur eru enn taplausar eftir þrjá leiki í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Þær sigruðu nýliða Hauka naumlega, 48-50, á Ásvöllum í kvöld.

Haukar byrjuðu betur og leiddu allt fram í annan leikhluta þegar gestirnir náðu loks forystunni. Munurinn var aldrei afgerandi en forystan hélst allt til enda. Undir lokinn var nokkur spenna hlauðin í leikinn en Grindvíkingar stóðust pressuna og unnu sinn þriðja sigur í jafnmörgum leikjum og mæta Keflvíkingum næst í uppgjöri toppliðanna.

Erla Reynisdóttir og Petrúnella Skúladóttir voru stigahæstar Grindvíkingar, Erla með 13 stig og Petrúnella með 11. Helena Sverrisdóttir var allt í öllu í liði Hauka og skoraði 25 stig og tók 19 fráköst.

„Við hleyptum óþarfa spennu í leikinn,“ sagði Örvar Kristjánsson, þjálfari UMFG, í samtali við Víkurfréttir. „Við vorum 11 stigum yfir í 3. leikhluta, en hleyptum þeim aftur inn í leikinn.“

Tölfræði leiksins

Bílakjarninn
Bílakjarninn