Mánudagur 5. apríl 2010 kl. 12:28
Grindavíkurstrákar Íslandsmeistarar í 7. flokki
Grindavíkar nældu sér í sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfu á þessari leiktíð þegar 7. flokkur drengja nældi sér í titilinn með góðri frammistöðu. Þjálfarar liðsins eru þau Guðmundur Bragason og Stefanía Jónsdóttir. Á meðfylgjandi mynd eru Grindvíkingar glaðir með sigurinn og titilinn.