Grindavík verður í efstu deild kvenna að ári
Það var komið að úrslitastundu í gærkvöldi í Grindavík þegar Grindavík og KFÍ mættust í oddaleik um sæti í efstu deild kvenna í körfubolta að ári. Grindavíkurstelpur mættu ákveðnar til leiks og eftir um 2. mínútu leik var staðan orðin 7-0 fyrir Grindavík. Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir minnkar muninn í 7-3 en þá kom kröftugur kafli hjá Grindavík sem skoruðu 7 stig í röð og staðan þá orðin 14-3 fyrir heimastúlkur. Eftir þetta jafnaðist leikurinn aðeins og staðan eftir 1.leikhluta var 18-15 fyrir Grindavík.
Pétur Sigurðsson, þjálfari KFÍ, hefur greinilega hvatt sínar stelpur vel áfram milli leikhluta því KFÍ skoruðu 8 stig í röð og breyttu stöðinni úr 18-15 yfir í 18-23. Þá snérist leikurinn við og nú voru það Grindavíkurstelpur sem skoruðu 7 stig í röð og staðan þá orðin 25-23. Mjög sveiflukenndur leikur hjá báðum liðum þar sem berjast þurfti fyrir hverju einasta stigi. Lokatölur í hálfleik voru 28-25 fyrir Grindavík. Stigahæstar hjá Grindavík var Ingibjörg Sigurðardóttir með 8 stig og Berglind Anna Magnúsdóttir með 7 stig. Hjá KFÍ var Svandís Anna Sigurðardóttir með 10 stig (11 fráköst) og Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir með 6 stig.
Grindavíkurstelpur mættu ákveðnar til leiks í seinni hálfleik og eftir 4 mínútu leik voru þær búnar að auka muninn í 11 stig, 37-26. En þá kom upp magnaður varnarleikur hjá KFÍ sem þvingaði Grindavík í að spila langar sóknir sem enduðu flestar með lélegum skotum. Á sama tíma náði KFÍ að setja niður nokkur stig og minnkuðu muninn niður í 37-33 og Grindavík ekki búið að skora í meira en 5 mínútur. Það var síðan Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir sem lagaði stöðuna aðeins fyrir Grindavík er hún setti niður 3ja stiga körfu rétt áður en leikhlutanum lauk svo staðan var 40-33 fyrir lokaleikhlutann.
Baráttan var í fyrirrúmi í 4.leikhluta og stífur varnarleikur hjá báðum liðum og gekk þeim illa að skora. Eftir um 2 mínútu leik brutu KFÍ stelpur ísinn og settu fyrstu stig leikhlutans er Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir skoraði góða körfu og stuttu seinna skoraði Anna Soffía Sigurlaugardóttir 3ja stiga körfu fyrir KFÍ og minnkar muninn í 2 stig, 40-38. Á þessum tíma var mikil stemning hjá KFÍ meðan Grindavíkur-stúlkur áttu í miklum erfiðleikum með að fá almennileg skot. Stuttu eftir þetta setur Ingibjörg Sigurðardóttir risa þrist fyrir Grindavík og eykur muninn í 43-38 og Jóhanna Rún Styrmisdóttir fylgir á eftir með 2 stigum og Jeanne Sicat setur niður þrist og allt í einu er Grindavík komið með 10 stiga forskot, 48-38 og 5 mínútur eftir af leiknum. Miðað við hvað liðunum hafði gengið illa að skora bjuggust margir við því að Grindavík væri komið með leikinn í sínar hendur en KFÍ-stelpur voru ekki tilbúnar að gefast upp. Marelle Maekalle setur niður eitt víti og Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir – Grindvíkingur í liði KFÍ – setur niður tvo þrista með stuttu millibili og minnkar muninn í 48-45 og um 3 mínútur eftir.
Ingibjörg Yrsa setur niður 1 víti fyrir Grindavík og eykur muninn í 49-45 og Anna Soffía skorar fyrir KFÍ í næstu sókn og minnkar muninn í 2 stig, 49-47 og 90 sekúndur eftir af leiknum. Grindavíkurstúlkur halda í sókn þar sem Ingibjörg Yrsa klikkar á 2ja stiga skoti en Jeanne nær góðu sóknarfrákasti og stelpurnar eru skynsamar og taka langa sókn sem endar á því að Ingibjörg Sigurðardóttir klikkar á 3ja stiga skoti. Þá tekur Ingibjörg Yrsa sóknarfrákast fyrir Grindavík og stuttu síðar klikkar Jóhanna Rún Styrmisdóttir á skoti fyrir Grindavík. Þrátt fyrir að hafa ekki skorað í þessari sókn þá skiptu þessi sóknarfráköst miklu máli því Grindavík var í næstum því eina mínútu í sókn. KFÍ tekst ekki að skora í næstu sókn sinni og brjóta fljótlega á Berglindi Magnúsdóttur sem setur niður seinna vítið og eykur muninn í 50-47. Sólveig Helga reynir erfitt 3ja stiga skot fyrir KFÍ til að jafna leikinn sem geigar. Berglind Anna nær í baráttu varnarfrákast fyrir Grindavík og það er síðan brotið á Jeanne Sicat sem klikkar á báðum vítunum sínum. Sólveig Helga fékk þá eitt enn tækifæri til að jafna leikinn fyrir KFÍ en klikkar úr erfiðu 3ja stiga skoti um leið og tíminn rennur út.
Fögnuður Grindavíkurstúlkna var mikill og verðskuldaður í lok leiks og var þeim ákaft fagnað af fjölda áhorfenda er mættu á völlinn til að hvetja stelpurnar áfram. Var umtalað að ekki hafi mætti jafn mikill fjöldi á kvennakörfuboltaleik í bæjarfélaginu til fjölda ára.
KFÍ á heiður skilið fyrir frábæra frammistöðu í deildinni í vetur og rimmur þessara tveggja liða voru einstaklega skemmtilegar og spennandi. Munurinn á liðunum í kvöld var lítill og miðað við tölfræðina þá voru það tapaðir boltar sem fóru illa með KFÍ auk þess sem Grindavík náði mikilvægum sóknarfráköstum.
Fremstar meðal jafningja í liði Grindavíkur var hin unga og efnilega Ingibjörg Sigurðardóttir með 13 stig, 12 fráköst og 4 stolna, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir með 11 stig, Berglind Anna Magnúsdóttir með 11 stig og 10 fráköst, Jóhanna Rán Styrmisdóttir með 8 stig og 12 fráköst. Auk þess er nauðsynlegt að nefna Jeanne Sicat sem stjórnaði leik liðsins vel og var með 6 stig og 4 stoðsendingar.
Hjá KFÍ var Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir með 17 stig og 9 fráköst, Svandís Anna Sigurðardóttir með 13 stig og 16 fráköst og Anna Soffía Sigurlaugardóttir með 8 stig.
Umfjöllun/ Bryndís Gunnlaugsdóttir
Karfan.is