Grindavík vann ÍR - stórleikur í Ljónagryfjunni í kvöld
Grindvíkingar unnu þægilegan sigur á ÍR í Domino’s deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Lokatölur urðu 79-94. Jóhann Árni Ólafsson og Jón Axel Guðmundsson fóru fyrir Grindavíkurliðinu og skoruðu 20 og 19 stig fyrir liðið. Grindavík hefur sigraði þremur fyrstu leikjum liðsins á tímabilinu og það án þess að vera komnir með útlending.
Í kvöld er stórleikur í Njarðvík þegar grannarnir frá Keflavík mæta í heimsókn í fyrsta nágrannaslag vetrarins.