Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindavík valtaði yfir Fjölni
Samuel Zeglinski skoraði 38 stig í kvöld.
Fimmtudagur 13. desember 2012 kl. 22:35

Grindavík valtaði yfir Fjölni

Íslandsmeistarar Grindavíkur fóru illa með liðsmenn Fjölnis í 10. umferð Dominos-deildar karla sem fram fór í..

Íslandsmeistarar Grindavíkur fóru illa með liðsmenn Fjölnis í 10. umferð Dominos-deildar karla sem fram fór í kvöld. Lokatölur urðu 85-122 en leikurinn var gott sem búinn eftir fyrsta leikhluta.

Samuel Zeglinski fór á kostum í fyrsta leikhluta og skoraði 22 stig. Hann setti niður sex þrista í sjö tilraunum og fór hreinlega á kostum. Skotnýting Grindvíkinga í fyrsta leikhluta var mögnuð en liðið leiddi 19-43 eftir tíu mínútur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Grindvíkingar héldu uppteknum hætti það sem eftir lifði leiks og eru með sigrinum komnir í 16 stig á toppi deildarinnar líkt og Þór Þorlákshöfn sem eru efstir á innbyrðisviðureign gegn Grindavík.

Samuel Zeglinski skoraði 38 stig í kvöld og var funheitur í kvöld. Aaron Boussard kom með 18 stig og Þorleifur Ólafsson kom næstur með 15 stig. Næsti leikur Grindavíkur er einmitt á móti Fjölni í Powerade-bikarnum en liðið getur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum með sigri.

Fjölnir-Grindavík 85-122 (19-43, 19-28, 25-21, 22-30)

Grindavík: Samuel Zeglinski 38/6 fráköst/11 stoðsendingar, Aaron Broussard 18/8 fráköst, Þorleifur Ólafsson 15, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 11/8 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 11/6 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 8/5 fráköst, Hilmir Kristjánsson 5, Ólafur Ólafsson 5/5 fráköst, Davíð Ingi Bustion 4/5 fráköst, Jens Valgeir Óskarsson 4, Björn Steinar Brynjólfsson 3.