Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Grindavík úr leik í Mjólkurbikarnum
Fimmtudagur 31. maí 2018 kl. 09:29

Grindavík úr leik í Mjólkurbikarnum

Grindavík tók á móti ÍA í Mjólkurbikarnum í gærkvöldi, leikurinn endaði með 2-1 sigri gestanna og Grindvíkingar eru því úr leik í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu.

Bjarki Steinn Bjarkarson kom ÍA yfir á 48. mínútu leiksins  en Grindvíkingar jöfnuðu á 79. mínútu með marki frá Aroni Jóhannssyni. Aðeins níu mínútum síðar eða á 88. mínútu kom Arnar Már Guðjónsson ÍA yfir en Grindavík náði ekki að bæta öðru marki við í leiknum og 1-2 tap því staðreynd.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024