BM Vallá 1-10 sept

Íþróttir

Grindavík tapaði á teppinu í Garðabæ
Mánudagur 6. júní 2011 kl. 21:48

Grindavík tapaði á teppinu í Garðabæ

Grindvíkingar töpuðu 2-1 gegn Stjörnunni frá Garðabæ í kvöld í Pepsi-deild karla.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Garðbæingar komust í 2-0 eftir tæplega 30 mínútna leik en Jóhann Helgason skoraði með skalla rétt áður en flautað var til leikhlés. Grindvíkingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna í síðari hálfleik en allt kom fyrir ekki og niðurstaðan 2-1 sigur Stjörnunnar. Grindvíkingar áttu mun fleiri skot að marki Garðbæinga en ekki tókst þeim að skora. Grindvíkingar sitja nú í 8. sæti með 7 stig eftir 7 leiki.



Byrjunarlið Grindavíkur: Óskar Pétursson, Jamie McCunnie, Ray Anthony Jónsson, Ian Paul McShane, Michal Pospisíl, Jóhann Helgason, Scott Ramsay, Orri Freyr Hjaltalín, Ólafur Örn Bjarnason, Robert Winters, Alexander Magnússon.



Myndir: Tomasz Kolodziejski

Bílakjarninn
Bílakjarninn