HSS
HSS

Íþróttir

Grindavík stöðvaði sigurgöngu Leiknis og Njarðvík úr fallsæti
Einar Karl Ingvarsson átti laglega sendingu á Símon Loga Thasapong sem skilaði eina marki leiksins. Myndir/Petra Rós Ólafsdóttir
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 17. ágúst 2023 kl. 09:29

Grindavík stöðvaði sigurgöngu Leiknis og Njarðvík úr fallsæti

Njarðvíkingar komust úr fallsæti Lengjudeildar karla í knattspyrnu með fjórða sigrinum í röð þegar þeir unnu Selfoss á útivelli. Grindvíkingar unnu Leiknismenn í Grindavík með einu marki gegn engu en fyrir leikinn hafði Leiknir unnið sex leiki í röð, þetta er annar sigurleikur Grindavíkur eftir að Brynjar Björn Gunnarsson tók við liðinu.

Grindavík - Leiknir R. 1:0

Grindvíkingar hafa snúið við keflinu og sýna nú hvað í þeim býr. Leikurinn við Leikni var mikill baráttuleikur og hefðu úrslitin hæglega getað fallið með hvoru liði sem er.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Símoni Logi Thasapong skoraði eina mark leiksins þegar Grindvíkingar sneru vörn í sókn. Leiknismenn tóku aukaspyrnu rétt utan vítateigs heimamanna sem bægðu hættunni frá, Tómas Orri Róbertsson vann svo boltann á eigin vallarhelmingi og geystist fram, sendi á Einar Karl Ingvarsson sem kom upp vinstri kantinn og sendi viðstöðulaust yfir til hægri þar sem Símon Logi kom á ferðinni og afgreiddi knöttinn framhjá markverði Leiknis (21').

Bæði lið fengu sín færi en nýttu þau ekki. Gestirnir voru hættulega nálægt því að jafna á lokamínútunum þegar þeir sóttu hratt inn í teiginn og hófu mikla orrahríð að marki heimamanna. Leiknismenn náðu fjórum skotum í röð á markið en Grindvíkingar köstuðu sér hver um annan þveran og komust fyrir þau öll og náðu að tryggja sigurinn.

Myndirnar úr leik Grindavíkur og Leiknis tók Petra Rós Ólafsdóttir.

Selfoss - Njarðvík 2:3

Rafael Victor er búinn að skora ellefu mörk í Lengjudeildinni í sumar. Mynd úr safni VF/JPK

Leikur Selfoss og Njarðvíkur var mjög kaflaskiptur. Njarðvíkingar byrjuðu leikinn vel og Oumar Diouck skoraði fyrsta markið strax á 2. mínútu. Glæsilegt mark með skoti utan teigs og Diouck skrúfaði hann í fjærhornið.

Rafel Victor tvöfaldaði forystu Njarðvíkur eftir að Diouck lagði boltann fyrir Victor rétt fyrir utan miðjan vítateiginn, Victor skaut viðstöðulaust lágu og föstu skoti sem endaði út við stöng (5').

Victor var aftur á ferðinni skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Þá sendi Gísli Martin Sigurðsson boltann inn á markteiginn þar sem Victor stakk sér fram fyrir varnarmann og skoraði annað mark sitt (41').

Oumar Diouck var nálægt því að skora fjórða mark Njarðvíkinga snemma í seinni hálfleik þegar hann vann boltann á eigin vallahelmingi og slapp einn inn fyrir en sendi boltann naumlega framhjá markinu.

Selfyssingar gerðu þrefalda skiptingu eftir tæplega klukkutíma leik og varamennirnir áttu eftir að hafa áhrif. Aðeins þremur mínútum eftir skiptingarnar minnkuðu þeim muninn með marki frá einum varamannnanna (60') og svo skoraði annar þeirra á 74. mínútu.

Skyndilega var gjörbreytt staða komin upp og Njarðvíkingar, sem höfðu leikinn í hendi sér, búnir að hleypa spennu í leikinn.

Selfyssingar voru nálægt því að jafna en vörnin hélt og Njarðvík tryggði sér fjórða sigurinn í röð og er ekki lengur í fallsæti.

Oumar Diouck skoraði eitt mark og lagði upp annað. Mynd úr safni VF/JPK

Njarðvík fór upp fyrir Selfoss og Þrótt R. og sitja nú í níunda sæti en Grindvíkingar eru komnir í það sjöunda.

Leikina má sjá í spilaranum hér að neðan.

Grindavík - Leiknir R. 1:0
Selfoss - Njarðvík 2:3