HSS
HSS

Íþróttir

Miðvikudagur 19. apríl 2000 kl. 21:50

Grindavík steinlá í Frostaskjóli

KR hafði sigur á Grindavík 83:55, í öðrum leik liðanna í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn, en leikurinn var háður í Frostaskjóli í kvöld. Staðan í einvígi liðanna er því jöfn, 1-1, en næsti leikur verður í Grindavík nk. laugardag kl 16:00. Leikurinn var jafn í byrjun, en strax um miðjan fyrri hálfleik náði KR yfirhöndinni og komst í 33:22. Grindvíkingar náðu þó aðeins að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks, en staðan í hálfleik var 34:26, KR í hag. Í síðari hálfleik náði Grindavík að minnka muninn í fimm stig, en það var það næsta sem þeir komust KR-ingum það sem eftir lifði leiknum. Ungu leikmennirnir í KR fengu að spreyta sig undir lok leiksins og stóðu sig vel, meðan stemmningsleysi Grindvíkinga var algert, en þeir náðu aldrei að komast í takt við leikinn. Stigahæstur KR-inga var fyrirliðinn, Ólafur Jón Ormsson með 27 stig, en í liði Grindvíkinga var Brenton Birmingham atkvæðamestur með 21 stig.
Bílakjarninn
Bílakjarninn