Laugardagur 29. janúar 2011 kl. 13:41
Grindavík sigraði Íslandsmeistara Breiðabliks
Grindavík lagði Breiðablik 1-0 í Fótbolta.net mótinu í Fífunni fyrr í dag.
Magnús Björgvinsson skoraði eina markið þegar um það bil tíu mínútur voru eftir af leiknum.
Grindvíkingar náðu að komast upp fyrir Breiðablik í 3.sæti riðilsins með fjögur stig en Íslandsmeistararnir enduðu í fjórða og neðsta sæti með þrjú stig.