HSS
HSS

Íþróttir

Grindavík öruggir uppi
Sunnudagur 12. september 2004 kl. 16:54

Grindavík öruggir uppi

Grindvíkingar tryggðu sér sæti í úrvalsdeild að ári með góðum útisigri á Keflavík, 3-4.

Keflvíkingar komust fyrst yfir með sjálfsmarki frá Grindvíkingum Guðmundi Bjarnasyni, en gestirnir svöruðu með tveimur mörkum fyrir leikhlé. Þar voru að verki Óskar Hauksson og Sinisa Kekic.

Í seinni hálfleik vöknuðu Keflvíkingar aftur til lífsins og komust yfir með tveimur mörkum frá varnarjaxlinum Haraldi Guðmundssyni. Útlitið var gott hjá heimamönnum, en Grétar Hjartarson og Alfreð Jóhannesson skoruðu tvö mörk í viðbót fyrir Grindavík og sigurinn var tryggður.

Nánari fréttir af leiknum innan tíðar...
Bílakjarninn
Bílakjarninn