Grindavík og Keflavík mæta botnliðunum
Tveir leikir fara fram í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Báðir hefjast leikirnir kl. 19:15 og með sigri geta Keflavíkurkonur komist í toppsætið í deildinni þegar Blikakonur koma í heimsókn. Blikar leika á ný gegn Keflavík eftir stóran ósigur í Lýsingarbikarnum á mánudagskvöld. Þær verða aftur án erlends leikmanns.
Í Grindavík mæta nýliðar Hamars í heimsókn en Grindavíkurkonur hafa að undanförnu verið að sækja í sig veðrið en töpuðu samt naumlega gegn Íslandsmeisturum Hauka með einu stigi fyrir skemmstu.