Grindavík og Grótta skildu jöfn – Hafnamenn skoruðu sjö
Grindvíkingar tóku á móti Gróttu í dag í þriðju umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu og skildu liðin jöfn eftir að Grindavík leiddi 1:0 í hálfleik.
Hafnir hófu leik í fimmtu deild í gær og má segja að Hafnamenn hafi tekið létta skotæfingu þegar Spyrnir mætti í Nettóhöllina. Hafnamenn byrjuðu mótið með látum, skoruðu sjö mörk og héldu hreinu.
Grindavík - Grótta 2:2
Mörk Grindavíkur: Sigurjón Rúnarsson (40’) og Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (71’).
Leikurinn var tíðindalítill framan af fyrri hálfleik en Grindvíkingar færðu sig framar þegar stutt var til hálfleiks. Það borgaði sig því þeir unnu hornspyrnu og upp úr henni barst boltinn til Matevz Turkus sem átti góða sendingu Sigurjón Rúnarsson sem var einn og óvaldaður á fjærstöng. Jafn öflugur skallamaður og Sigurjón lætur ekki svona færi fram hjá sér fara og skallaði boltann í netið (40’).
Grindvíkingar fóru því inn í hálfleikinn með eitt mark í forystu en Gróttumenn voru fljótir að jafna eftir að seinni hálfleikur rúllaði af stað. Markið kom eftir hornspyrnu þar sem Arnar Daníel Aðalsteinsson stökk manna hæst og skallaði fram hjá Aroni Degi Birnusyni í marki Grindavíkur (48’), staðan orðin jöfn á ný.
Rúmar tíu mínútur liðu án þess að nokkuð markvert gerðist en Grótta hélt þá í skyndisókn sem Grindvíkingum tókst ekki að hrinda. Að endingu barst boltinn til Damian Timan sem skoraði úr auðveldu færi í teignum (61’).

Eftir að hafa lent undir tók Grindavík að færa sig ofar á völlinn en Gróttumenn brugðust við pressunni með hundleiðinlegri taktík sem fer nú um eins og eldur í sinu í íslenskri knattspyrnu. Rafal Stefán Daníelsson, markvörður Gróttu, gerði sér þá upp meiðsli og settist á völlinn en liðið allt safnaðist til skrafs og ráðagerða á hliðarlínunni.
Þetta átti þó eftir að springa í andlitið á þeim því tveimur mínútum eftir „leikhléið“ fékk Dagur Ingi Hammer Gunnarsson góða sendingu á nærstöng frá Ion Perelló Machi. Dagur þakkaði pent fyrir sig með því að skalla fram hjá Rafal og jafnaði leikinn (71’).

Dagur Ingi var nærri því að skora annað mark rúmum tíu mínútum síðar þegar hann sett hörkuskot rétt fram hjá marki Gróttu. Þá áttu Grindvíkingar sannkallað dauðafæri undir lok leiks þegar Turkus sendi langan bolta inn á teig Gróttu þar sem Einar Karl Ingvarsson tók skotið viðstöðulaust en náði ekki að stýra boltanum rétta leið og skotið langt yfir.
Að lokum varð annað jafntefli Grindavíkur í röð því niðurstaðan.

Hafnir - Spyrnir 7:0
Mörk Hafna: Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson (16’), Max William Leitch (30’, 55’ og 59’), Jón Arnór Sverrisson (75’), Kristófer Orri Magnússon (80’) og Þorgils Gauti Halldórsson (85’).