Grindavík/Njarðvík sló Val úr Mjólkurbikarnum
Lið Grindavíkur og Njarðvíkur tryggði sér gífurlega dýrmætan sigur á Val í Mjólkurbikar kvenna eftir hádramatískan og kaflaskiptan leik. Suðurnesjakonurnar eru komnar í 8 liða úrslit í bikarnum.
Sophia Faith Romine kom Grindavík/Njarðvík yfir í fyrri hálfleik. Staðan var 0-1 í hálfleik. Ása Björg Einarsdóttir tvöfaldaði svo forskotið í upphafi seinni hálfleiks.
Málfríður Anna Eiríksdóttir minnkaði muninn fyrir Val á 76. mínútu. Ása Björg var aftur á ferðinni og kom Grindavík/Njarðvík í 1-3. Ágústa María Valtýsdóttir minnkaði svo aftur muninn fyrir Val úr vítaspyrnu.








