Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindavík með tap í fyrsta leik
Laugardagur 28. apríl 2018 kl. 16:33

Grindavík með tap í fyrsta leik

- Níu spjöld á loft í Grindavík

Grindavík tók á móti FH á Grindavíkurvelli í dag í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Sólin var á lofti í Grindavík en lofthitinn og golan sem er vel þekkt í bænum kældi aðeins og sáust nokkrir kuldalegir áhorfendur en völlurinn var í góðu standi og fínar aðstæður fyrir fótboltaleik.

Strax á fjórðu mínútu leiksins átti Gunnar Þorsteinsson háa fyrirgjöf fyrir markið og var René Joensen nálægt því að skora. Á þrettándu mínútu átti Grindavík aftur dauðafæri en William Daniels nýtti færið ekki. FH skoraði síðan á 34. mínútu leiksins og Steve Lennon átti markið eftir stungusendingu. Fleira gerðist ekki í fyrri hálfleik og staðan því 0-1 fyrir FH þegar liðin gengu inn í klefa í hálfleik.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Grindvíkingar gerðu eina breytingu á liði sínu í seinni hálfleik en Dagur Ingi Hammer Gunnarsson kom inn á fyrir William Daniels. Grindavík lék með vindinn í bakið í seinni hálfleik en hann var frekar tíðindalítill. Á 65. mínútu gerði Grindavík breytingu á liðinu sínu þegar Marínó Axel Helgason kom inn á fyrir Jóhann Helga Hannesson og Grindavík gerði síðan lokaskiptingu sína í leiknum á 90. mínútu en þá kom Simon Smidt inn á fyrir Nemanja Latinovic.

Lokatölur leiksins voru 0-1 fyrir FH og alls fóru níu spjöld á loft í leiknum en Brynjar Ásgeir Guðmundsson, leikmaður Grindavíkur sagði í viðtali eftir leikinn að leikurinn hafi verið frekar harður og hann sagði einnig að þeir hefðu búist við hörkuleik gegn FH. Viðtal við Brynjar og Óla Stefán Flóventsson, þjálfara Grindavíkur má sjá hér að neðan.

Grindavík 0 - 1 FH
0-1 Steven Lennon ('34)

Hilmar Bragi Bárðarsson, blaðamaður Víkurfrétta var á leiknum og tók meðfylgjandi myndir á leiknum í Grindavík í dag.