Grindavík lagði FH
Kvennalið Grindavíkur átti góðan leik á heimvelli í gær og sigraði lið FH með tveimur mörkum gegn engu. Rachel Furness og Elínborg Ingvarsdóttir skoruðu mörk Grindavíkur sem nú hefur sjö stig eftir fimm leiki.
Furness var nýkominn til landsins frá Norður-Írlandi og óhætt að segja að hún hafi byrjað ljómandi vel. Grindavík hafði nokkra yfirburði í leiknum og spilaði frábæran varnarleik.
Mynd/www.grindavik.is