Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindavík lá að Ásvöllum
Fimmtudagur 6. mars 2008 kl. 11:42

Grindavík lá að Ásvöllum

Íslandsmeistarar Hauka lögðu Grindavík 87-73 í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í gær. Nú er aðeins ein umferð eftir í deildarkeppni kvenna og þurfa Grindvíkingar að vinna KR með 16 stiga mun til þess að ná heimaleikjaréttinum gegn KR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Tiffany Roberson gerði 21 stig og tók 10 fráköst fyrir Grindavík í gær en Haukar telfdu fram nýjum leikmanni sem heitir Victoria Crawford og setti hún 42 stig í leiknum, tók 10 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

 

Petrúnella Skúladóttir átti fína spretti fyrir Grindavík með 17 stig en Joanna Skiba gerði 18 stig og var með 9 stoðsendingar. Ljóst er að Keflavík og Haukar mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þar sem Keflavík er með heimaleikjaréttinn eftir að hafa tryggt sér deildarmeistaratitilinn í gærkvöldi en óvíst er hvort KR eða Grindavík verði með heimaleikjaréttinn en það ræðst næstkomandi laugardag þegar liðin mætast kl. 16:00 í Röstinni.

 

Tölfræðin úr leik Hauka og Grindavíkur

 

Staðan í deildinni

 

VF-Mynd/ Stefán Þór Borgþórsson - Frá leik Hauka og Grindavíkur í gærkvöldi. Unnur Tara Jónsdóttir er hér komin framhjá Petrúnellu Skúladóttur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn