Íþróttir

  • Grindavík kom með eitt stig úr Eyjum
    Myndir: Margrét Magnúsdóttir
  • Grindavík kom með eitt stig úr Eyjum
Föstudagur 18. ágúst 2017 kl. 10:17

Grindavík kom með eitt stig úr Eyjum

Grindavík gerði 2:2 jafntefli við ÍBV í gær í Vestmannaeyjum í Pepsí-deild kvenna. Fyrsta markið kom strax á 3. mínútu og var það Cloé Lacasse sem skoraði það fyrir ÍBV. Þannig var staðan í hálfleik. Kristín Anítudóttir Mcmillan jafnaði fyrir Grindavík á 56. mínútu. ÍBV komst aftur yfir með marki frá Kristínu Ernu Sigurlásdóttur á 67. mínútu. Grindavík jafnaði aftur með marki frá Maríu Sól Jakobsdóttur á 82. mínútu. Lokastaðan því 2:2 og er Grindavík er 7. sæti með 14 stig.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024