Grindavík í úrslit í fotbolta.net mótinu
Grindavík leikur til úrslita í fótbolta.net mótinu í knattspyrnu nk. laugardag og mætir liðið Stjörnunni. Lið Grindavíkur tryggði sér farmiðann í úrslitaleikinn eftir 2-1 sigur á HK sl. föstudag og sagði fyrirliði Grindavíkur, Gunnar Þorsteinsson í samtali við fotbolta.net eftir leikinn gegn HK að það væri ánægjulegt að komast í úrslitin en Grindavík hefur leyft ungu strákunum í liðinu að spreyta sig í mótinu og hafa þeir staðið sig afar vel.
„Það er gott að fá svona alvöru leiki til þess að sjá hvað er hægt að gera betur, hvað við erum að gera vel. Það eru margir hlutir sem við þurfum að laga en að sama skapi margt mjög gott,“ segir Gunnar.
Grindavík ætlar sér að gera betur en á síðasta tímabili og hefur liðið verið að styrkja hópinn sinn í vetur og segir Gunnar að þeir hafi sýnt það að þeir séu með sterkt lið sem getur komist langt.