Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindavík í öðru sæti þrátt fyrir stórt tap
Mánudagur 17. júlí 2017 kl. 22:21

Grindavík í öðru sæti þrátt fyrir stórt tap

Grindavík tapaði fyrir 4:0 Fjölni í Pepsi deild karla í kvöld. Leikurinn fór fram á heimavelli Fjölnis. Staðan var 2:0 í hálfleik fyrir Fjölni. Fjölnir var miklu betri aðilinn í leiknum og var ekki að sjá að Fjölnir væri á botni deildarinnar en Grindavík á toppnum. Grindvíkingar fengu vítaspyrnu á 79. mínútu þegar Andri Rúnar Bjarnason var felldur inni í vítateig. Hann fór sjálfur á punktinn en lét verja frá sér. Lokastaðan var því 4:0 fyrir Fjölni. Grindavík er í 2. sæti með 21 stig og á næst útileik við Stjörnuna á sunnudaginn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn