Grindavík í bikarúrslit kvenna
Grindavíkurstúlkur tryggðu sér farseðil í bikarúrslit kvenna í körfuknattleik með sigri á Keflavík, 68-62, í kvöld. Grindvíkingar voru lengst af sterkari aðilinn í leiknum og var það sérstaklega að þakka stórleik Jericu Watson sem skoraði 41 stig og tók 20 fráköst.
Grindvíkingar mæta ÍS í úrslitum laugardaginn 18. febrúar.
Grindvíkingar mæta ÍS í úrslitum laugardaginn 18. febrúar.