Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Grindavík fær framherja
Mánudagur 13. maí 2013 kl. 13:01

Grindavík fær framherja

Grindvíkingar sem leika í 1. deild karla í knattspyrnu hafa fengið til liðs við sig Denis Sytnik, fyrrum framherji ÍBV. Denis er 26 ára gamall Úkraínumaður sem lék með ÍBV sumarið 2010 og 2011. Fyrra árið skoraði hann sex mörk í 17 leikjum í Pepsi-deildinni en síðara árið komst hann ekki á blað í tíu leikjum.

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Grindvíkingar hafa verið í leit að framherja og því ákváðu þeir að semja við Sytnik.

„Eins og staðan er í dag þá vantar okkur senter og ekkert annað. Tomi (Ameobi) og Pape (Mamaodu Faye) eru farnir. Við erum með Stefán (Þór Pálsson) sem er í láni frá Breiðabliki og Magga (Björgvinsson) en okkur vantar einn senter í viðbót,“ sagði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindvíkinga við Fótbolta.net fyrir helgi.

Sytnik gæti spilað sinn fyrsta leik með Grindavík þegar liðið heimsækir Ægi í Borgunarbikarnum á morgun.