HSS
HSS

Íþróttir

Fimmtudagur 4. desember 2003 kl. 21:09

Grindavík enn ósigraðir, Njarðvík rústar Snæfell!

Njarðvík og Grindavík unnu bæði leiki sína í Intersport-deildinni í kvöld.

NJARÐVÍK-SNÆFELL

Njarðvík vann stórsigur á Snæfelli 105-68. Njarðvíkingar höfðu forystu í hálfleik en gerðu endanlega út um leikinn á fyrstu fimm mínútum þriðja leikhluta.

Brenton Birmingham virðist vera búinn að finna sig eftir að hafa srítt við meiðsli í byrjun vetrar og átti stórleik í kvöld. „Brenton var alveg ótrúlegur í kvöld og var langbesti maðurinn á vellinum“, sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur, í leikslok. „Annars var þetta bara framhald af því sem við höfum verið að gera að undanförnu og við spiluðum leikinn mjög vel.“ Hann lýsti einnig yfir ánægju sinni með ungu strákana sem fengu tækifæri til að sanna sig þegar sigurinn var í höfn.

Brenton var stigahæstur Njarðvíkinga með 29 stig og þar af hitti hann úr 7 af 8 þriggja stiga skotum sínum. Þar á eftir kom Brandon Woudstra með 21 stig og hann tók líka 12 fráköst, Friðrik Stefánsson skoraði 14 stig og tók 10 fráköst og Páll Kristinsson skoraði 14 einnig stig.

Stigahæstur Snæfellinga var Dondrell Whitmore sem skoraði 16 stig, Corey Dickerson skoraði 14 og Sigurður Þorvaldsson 13.

Tölfræði leiksins

 

HAMAR-GRINDAVÍK

Grindavík vann góðan útisigur á Hamri sem tapaði með því sínum fyrsta heimaleik í vetur. Lokastaðan var 79-87. Grindvæikingar leiddu framan af en Hamarsmenn komust aftur inn í leikinn í síðari hálfleik og komust yfir á tímabili. Grindvíkingar náðu þó aftur undirtökunum og héldu órofinni sigurgöngu sinni í deildinni áfram.

Friðrik Ingi, þjálfari Grindavíkur, var ekki alveg sáttur við leik sinna manna en var þó ánægður með stigin tvö. „Við unnum, en þetta var ekki fallegur sigur hjá okkur. Við vorum ekki að spila mjög vel heilt yfir en áttum nokkra góða kafla sem tryggðu sigurinn. Gamli maðurinn [Guðmundur Bragason] var okkur dýrmætur í kvöld og hélt okkur á floti á tímabili.“

Darrel Lewis var stigahæstur Grinvíkinga með 21 stig, Guðmundur Bragason skoraði 18 og Helgi Jónas skoraði 15 stig og gaf 8 stoðsendingar. Chris Dade var stigahæstur Hamarsmanna með 19 stig.

Tölfræði leiksins

Grindvíkingar eru enn efstir í deildinni og ósigraðir eftir 9 umferðir en  Njarðvik fylgir í humátt á eftir og er í öðru sæti en Snæfell er í því þriðja. Keflavík getur komist upp fyrir Snæfell ef þeir sigra KR á morgun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn