Grindavík án erlendra leikmanna í vetur
Grindavík hefur nú fetað í fótspor nágranna sinna á Suðurnesjum og sagt upp erlendu leikmönnum sínum fyrir komandi tímabil. Um er að ræða Damon Bailey í karlaflokki og Tiffany Roberson í kvennaflokki. Þessi ákvörðun var tekin á stjórnarfundi í gærkvöldi.
Slæmt efnahagsástand í þjóðfélaginu er ástæðan, en margir styrktaraðiliar geta ekki staðið við gera samninga við félögin í dag og því er þetta eina lausnin að mati Óla Björn Björgvinssonar, formanns KKD Grindavíkur.
FSu, Þór Ak., Stjarnan, KR og Tindastóll eru því einu liðin í Iceland Express deild karla sem enn eru með erlenda leikmenn. Uppi hefur verið sú umræða um að öll liðin muni eingungis leika á innlendum leikmönnum, en Tindastóll og Stjarnan hyggjast nota erlenda leikmenn í vetur. Það verður spennandi að sjá hvort KR muni nota sinn erlenda leikmann, eða feta í fótspor annara félaga í deildinni.
VF-MYND/JJK: Damon Bailey leikur ekki með Grindavík í vetur.