Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

  • Grindavík áfram í bikar - Keflavík úr leik
    Keflvíkingar voru ekki upp á sitt besta gegn Fylki og töpuðu 1-2. VF-myndir/pket.
  • Grindavík áfram í bikar - Keflavík úr leik
Miðvikudagur 25. maí 2016 kl. 20:56

Grindavík áfram í bikar - Keflavík úr leik

Víðismenn eina 3. deildarliðið í 16. liða úrslitum

Grindvíkingar og Víðismenn tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum en Keflvíkingar máttu þola að lúta í gras á heimavelli og eru úr leik í bikarkeppninni í knattspyrnu.
Grindvíkingar fengu KA í heimsókn og unnu sætan 1-0 sigur. Björn Berg Bryde skoraði sigurmark heimamanna sem eru heitir þessa dagana en þeir leiða fyrstu deildina með fullu húsi eftir þrjár umferðir.

Keflvíkingar voru ekki upp á sitt besta gegn frískum Fylkismönnum. Gestirnir gerðu tvö mörk í fyrri hálfleik en Magnús Sverrir Þorsteinsson gerði eina mark heimamanna á síðustu mínútu leiksins. Úrslitin 1-2 og Keflavík er dottið út úr bikarnum.
Víðismenn í Garði innbyrtu góðan sigur á Sindra frá Höfn en liðin voru jöfn eftir venjulegan leiktíma. Í framlengingu skoruðu Víðismenn svo tvisvar. Helgi Þór Jónsson skoraði fyrra mark Víðis og Aleksandar Stojkovic það síðara.

Public deli
Public deli

Jónas Guðni Sævarsson í baráttu við Fylkismenn.