Bygg
Bygg

Íþróttir

Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 20:52

Grindavík

Grindvíkingar gerðu 1-1 jafntefli við Fylki í toppslag 11. umferðar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór fram á heimavelli Grindvíkinga en það voru gestirnir úr Fylki sem komust yfir með marki frá Sverri Sverrissyni úr Vítaspyrnu. Það var svo Eyþór Atli Einarsson sem jafnaði fyrir heimamenn rétt fyrir hálfleik. Í síðari hálfleik skiptust liðin á að sækja. Eftir að Sinisa Kekic var rekinn útaf hjá heimamönnum fyrir að næla sér í tvö gul spjöld voru Fylkismenn þó meira með boltann en náðu þó ekki að gera sér mat úr því og endaði leikurinn því 1-1.Að loknum 11 umferðum eru Grindvíkingar í 2. sæti deildarinnar með 19 stig en Fylkir er á toppnum með 20 stig. Þess má geta að Grindvíkingar hafa ekki tapað í síðustu 6 leikjum, unnið 5 og gert eitt jafntefli.
Bílakjarninn
Bílakjarninn