Gríðarlegir yfirburðir Suðurnesjaliðanna
NJARÐVÍK-ÞÓR
Sigur Njarðvíkinga var ekki síður sannfærandi þar sem Þór átti ekkert erindi í heimamenn í Ljónagryfjunni. 101-62 stórsigur var raunin þar sem leikmenn skiptu bróðurlega með sér leiktíma. Kristján (Þristján) Sigurðsson sýndi enn eina ferðina hversu hættuleg skytta hann er og setti 6 stykki í kvöld úr 12 tilraunum. Glæsileg nýting hjá þessum stórefnilega 18 ára pilti, en hann var einnig duglegur í fráköstum og í vörninni.
Njarðvíkingar náðu 14 stiga forskoti strax eftir 1. leikhluta og var munurinn kominn yfir 30 stig í hálfleik. Hittni Þórsara úr 2ja stiga skotum var agaleg og raunar verri en fyrir utan 3ja stiga línuna en þar spilaði inn framlag Egils Jónassonar sem varði 11 skot!Einar Árni Jóhannsson, þjálfari, var í sjálfu sér sáttur við úrslitin þrátt fyrir að tilgangurinn með svona leikjum væri ekki mikill. „Það er erfitt að fá þessa leiki inn í Íslandsmótið, en ungu strákarnir fengu að spreyta sig og stóðu sig vel. Annars héldum við góðri einbeitingu allan leikinn og það er gott.“
Tölfræði leiksins
KEFLAVÍK-ÁRMANN/ÞRÓTTUR
Keflvíkingar lögðu Ármann/Þrótt með óheyrilegum mun í kvöld, 117-39. Ekki er hægt að segja mikið meira um þennan leik, en Keflvíkingar gátu altént æft sig í 3ja stiga skotum. Þeir tóku alls 49 slík skot í kvöld og hittu úr 18.
Yfirburðirnir voru algerir og var staðan 63-16 í hálfleik.
„Þetta er bara hættulegt að vera að spila svona leiki,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson, stórskytta Keflavíkur, og vísaði til þess að Halldór Halldórsson sneri sig illa á ökkla í leiknum. „Við settum okkur það markmið í leiknum að halda þeim undir 10 stigum í 1 og öðrum leikhluta og það tókst.“
Tölfræði leiksins
GRINDAVÍK-BREIÐABLIK
Grindvíkingar áttu ekki í vandræðum með Blikana í kvöld og unnu auðveldan sigur, 111-59. Sama var uppi á teningnum hjá þeim og hinum Suðurnesjarisunum, en þeir komu inn í leikinn með gott forskot úr fyrri leiknum.
Annars léku Grindvíkingar mun betur í þessum leik en þeim fyrri þar sem þeir voru nokkuð ójafnir. Þeir voru sérlega öflugir í vörninni það sem Blikar misstu boltann meira en 40 sinnum.Kristinn Friðriksson, þjálfari, var alla veganna sáttur eftir leikinn. „Við komum klárir til leiks og náðum að pressa vel á þá. Mínir menn komu til leiks tilbúnir til að nota þennan leik sem góða æfingu.“