Bygg
Bygg

Íþróttir

Gríðarleg spenna í framlengdum leik
Fimmtudagur 29. október 2009 kl. 09:44

Gríðarleg spenna í framlengdum leik


Valur hafði betur gegn Njarðvík í miklum spennuleik sem þurfti að framlengja er liðin mættust í gærkvöldi í Iceland Express deild kvenna. Staðan var 45-45 eftir venjuleikan leiktíma.
Sigurlaug Guðmundsdóttir setti niður þrist í framlengingunni og Valskonur jöfnuðu metin þegar mínúta var eftir. Valur komst í 52-50 þegar 12 sekúndur voru eftir til leiksloka og spennan var gríðarleg. Njarðvík náði að jafna í 52-52 og þegar aðeins 2,8 sekúndur voru eftir höfðu Valsstúlur yfirhöndina 55-52. Shantrell Moss fékk nýtti bæði vítaskotin og munurinn var aðeins 1 stig. Njarðvíkingar áttu innkast á miðlínunni, komu boltanum á Moss sem reyndi 3ja stiga skot en það geigaði. Úrslit leiksins urðu því 55-54 fyrir Val.

Moss skoraði 25 stig fyrir Njarðvík og átti 6 stoðsendingar. Helga Jónasdóttir skoraði 11 stig og tók 11 fráköst.

--
Mynd/www.karfan.is - Njarðvíkurliðið leggur á ráðin í spennuleik gærkvöldsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn