Grétar Hjartarson leikur ekki meira með
Grétar Ólafur Hjartarson, leikmaður Grindavíkur í knattspyrnu, leikur ekki meira með Grindavík á yfirstandandi leiktímabili. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, staðfesti þetta á Útvarpi Sögu nú í hádeginu. Grétar Ólafur, sem hefur verið aðalmarkaskorari Grindavíkur undanfarin ár, hefur átt í erfiðum ökklameiðslum síðan í vor.Brotthvarf Grétars Ólafs er mikið áfall fyrir Grindavík sem hefur úr mörgum sóknarmönnum að spila. Um helgina hélt Lee Sharpe heim á leið til Englands vegna meiðsla.
Morgunblaðið greinir frá.
Morgunblaðið greinir frá.