Bygg
Bygg

Íþróttir

Grétar ekki til GAIS
Mánudagur 9. janúar 2006 kl. 16:46

Grétar ekki til GAIS

KR-ingar höfnuðu nýlega beiðni frá sænska liðinu GAIS um að fá Sandgerðinginn, Grétar Hjartarson leikmann KR í knattspyrnu, til sín á reynslu í 10 daga. Fréttablaðið greindi frá þessu í dag.

GAIS vann sér sæti í sænsku úrvalsdeildinni í haust og er nú í leit að leikmönnum. Á heimasíðu KR kemur einnig fram að KR hefðu svarað því að GAIS gæti fylgst með Grétari á æfingamóti á La Manga í næsta mánuði en þar verða KR-ingar í næsta mánuði ásamt ýmsum liðum frá Norðurlöndum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn