Grátlegt tap á heimavelli hjá Njarðvík
Njarðvík tapaði í kvöld fyrir ÍR í spennandi leik í Dominos-deild karla, 80-82. Njarðvík hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik og leiddi 46-40. Njarðvíkingar var átta stigum yfir fyrir lokaleikhlutann en ÍR-ingar náðu fínum endaspretti og fögnuðu góðum útisigri. Ágúst Orrason átti þriggja stigaskot fyrir Njarðvíkinga í þann mun sem leiktíminn rann út en skotið geigaði.
Jeron Belin átti fínan leik fyrir Njarðvíkinga og skoraði 35 stig. Markcus Van kom næstur með 17 stig og tók einnig 13 fráköst. Elvar Már Friðriksson skoraði 12 stig og sendi fimm stoðsendingar.
Njarðvík er í 8. sæti Dominos-deildarinnar eftir þrjá leiki en liðið hefur unnið einn leik af þremur.
Njarðvík-ÍR 80-82 (27-25, 19-15, 20-18, 14-24)
Njarðvík: Jeron Belin 35/5 fráköst, Marcus Van 17/13 fráköst, Elvar Már Friðriksson 12/5 stoðsendingar, Ágúst Orrason 10, Hjörtur Hrafn Einarsson 2, Oddur Birnir Pétursson 2, Maciej Stanislav Baginski 2.
ÍR: Hreggviður Magnússon 21, Eric James Palm 19/5 stoðsendingar, Nemanja Sovic 16, Hjalti Friðriksson 13/6 fráköst, Sveinbjörn Claessen 6/4 fráköst, D'Andre Jordan Williams 4/10 fráköst/14 stoðsendingar, Þorvaldur Hauksson 2, Vilhjálmur Theodór Jónsson 1.
Staðan í Dominos-deild karla:
1 Grindavík 2 2 0 205 - 182 4
2 Skallagrímur 3 2 1 262 - 239 4
3 Snæfell 3 2 1 308 - 281 4
4 Fjölnir 3 2 1 258 - 248 4
5 KR 3 2 1 265 - 245 4
6 Stjarnan 3 2 1 285 - 272 4
7 Þór Þ. 2 1 1 177 - 176 2
8 Njarðvík 3 1 2 238 - 241 2
9 ÍR 3 1 2 251 - 271 2
10 KFÍ 2 1 1 162 - 189 2
11 Keflavík 3 0 3 246 - 281 0
12 Tindastóll 2 0 2 148 - 180 0
Næstu leikir:
19.10 Tindastóll-KFÍ
19.10 Þór Þ.-Grindavík