HSS
HSS

Íþróttir

Grannarimma í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 28. nóvember 2012 kl. 09:14

Grannarimma í Reykjanesbæ

Hinar ósigruðu Keflavíkurstúlkur taka á móti grönnum sínum í Njarðvík í hörkuslag í Dominos-deild kvenna í körfubolta. Keflvíkingar hafa unnið alla 10 leiki sína í deildinni til þessa og eru á toppi deildarinnar, en Njarðvíkingar hafa aðeins fagnað þremur sigrum og eru í næstneðsta sæti deildarinnar þegar tíu umferðum er lokið.

Leikurinn fer fram í Toyota-hölinni við Sunnubraut og hefst hann klukkna 19:15. Grindvíkingar sem hafa verið á uppleið að undaförnu eftir þjálfaraskipti eiga heimaleik gegn Snæfellingum sem eru í öðru sæti deildarinnar. Sá leikur hefst einnig klukkan 19:15.

Bílakjarninn
Bílakjarninn