Íþróttir

Göngum á 12 fjöll  árinu 2019
Laugardagur 26. janúar 2019 kl. 09:00

Göngum á 12 fjöll árinu 2019

Mikil vakning er meðal almennings um hvers kyns útivist. Áhugi á fjallgöngum hefur vaxið hratt. Sem dæmi má nefna að nýlega boðaði Ferðafélag íslands til kynnigarfundar um fjallgöngur á árinu. Um 400 manns mættu.

Áhugahópur fólks á Reykjanesi hefur sett sér það markmið að ganga a.m.k. á 12 fjöll á árinu 2019.  Munum byrja strax í febrúar. Ekkert gjald tekið fyrir þátttöku en fólk kemur sér saman um ferðir (í einhverjum tilvikum splæst í rútuferð).

Public deli
Public deli

Kynningarfundur verður haldinn í Keili á Ásbrú FIMMTUDAGINN 31. JANÚAR KL. 20-21:30.

Hugmyndir að fjöllum ársins kynntar, fyrirkomulag rætt, undirbúningur, búnaður o.s.frv. Nú er tækifæri til að slást í skemmtilegan hóp.

Fjöll sem horft er til á árinu:  Þórðarfell, Eldvörp, Gullbringa, Móskarðshnjúkar, Esja, Heiðarhorn, fjöllin við Landmannalaugar, Sogin og Grænavatnseggjar, Lambafellsklofi, Snæfellsjökull, Leggjabrjótur, Trölladyngja, Keilir.

Allir velkomnir.