Golfþáttur Sjónvarps Kylfings kominn í loftið
Fyrsti golfþáttur sumarsins hjá Sjónvarpi Kylfings.is er kominn í loftið. Hægt er að horfa á þáttinn hér en hann var frumsýndur í gærkvöldi kl. 21.30 á ÍNN og er sýndur á tveggja tíma fresti í allan dag. Lokasýning er kl. 19:30.
Við hefjum leikinn í fyrsta þættinum á Strandarvelli á Hellu, skoðum völlinn og sögu hans og ræðum við hjónin Óskar Pálsson og Katrínu Aðalbjörnsdóttur, sem eru allt í öllu á Strönd. Í nágrenninu er knattspyrnukappinn fyrrverandi, Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson búinn að byggja glæsilegt hótel. Nú er golfferlillinn að hefjast hjá þessum hressa kappa. Við förum í golf með honum og Strandarhjónunum og skoðum í leiðinni nýja hótelið, Stracta hotel.
Við rifjum upp Landsmót í golfi 1991 með Úlfari Jónssyni og skoðum gamlar myndir frá mótinu en þetta var næst síðasti sigur kappans af sex á Íslandsmótinu í höggleik.
Við förum á vippæfingu með einum af eldri kylfingum landsins og fáum svo leiðsögn í vippunum frá áttföldum íslandsmeistara.