Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Golfskálinn ekki í eigu GG?
Þriðjudagur 10. janúar 2012 kl. 10:10

Golfskálinn ekki í eigu GG?

Í skýrslu formanns á aðalfundi Golfklúbbs Grindavíkur fyrir skömmu kom fram að í haust bárust stjórn GG þær fréttir að núverandi golfskáli er ekki skráður í eigu golfklúbbsins en árið 2008 færði Fjársýsla ríkisins húsnæðið undir sína eign. Golfklúbburinn hafði fengið húsnæðið að gjöf frá ríkinu og byggði núverandi golfskála upp með sínu fjármagni og sjálfboðavinnu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Því miður er ekki til neinn samningur sem sannar okkar eignarhald á skálanum og því erfitt að sækja það mál. Þó eru aðilar á vegum golfklúbbsins að skoða þau mál fyrir okkur. Vonumst við til að farsæl lausn fáist í þetta vandræðamál og eignarhaldið verið ótvírætt okkar. Á meðan það er óljóst er fásinna að fara í viðgerðir eða endurbætur á húsnæðinu," sagði Páll Erlingsson í skýrslu sinni.

Þá fjallaði Páll um framkvæmdir síðasta árs:

„Það er með ólíkindum hversu mikið við höfum náð að framkvæma á árinu 2011, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að Grindavíkurbær greiddi einungis 1.5 milljónir í stækkunarstyrk á árinu og ákvað að fresta síðustu styrktargreiðslunum. Enn á eftir að greiða út 5.3 milljónir af styrknum. Keypt var lítil beltagrafa á 1.2 milljónir króna og vinnubíll fyrir völlinn á 1 milljón, auk pallbíls sem IAV seldi okkur með miklum afslætti á 550 þúsund. Þess vegna má segja að það sé kraftaverki nær að við höfum náð að halda úti áformum okkar í stækkunarmálum og gott betur án opinbers fjármagns á þessu ári.

Einnig má geta þess að við höfum að hluta til endurgreitt þær tæpu 7 milljónir króna sem fengnar voru til að greiða niður óhagstæð langtímalán í lok árs 2008 auk þess að greiða tapið sem varð á peningamarkssjóðnum að upphæð rúmlega 5 milljónum. Samtals um 12 milljónir króna. Það náum við með hagræðingu, vinnuframlagi ófárra manna við stækkunarframkvæmdirnar og afgangi af rekstrarfé.

Við höfum náð að framkvæma og vinna vel úr því fjármagni sem okkur hefur verið ætlað, þó enn sé nokkuð eftir á leið okkar. Má þar nefna sandgryfjur, ný teigaskilti, bekki og slíkt sem er á teigum ásamt fleiri atriðum sem munu koma nánar í ljós. Reiknast til að kostnaður við fullgerðan völlinn muni fara fram úr 51 milljón, þar sem áætlun gerir ráð fyrir um 12 milljón króna viðbótarkostnaði á árunum 2012-13.

Eins og menn muna frá árinu 2008 studdu bæjaryfirvöld dyggilega við bakið á Golfklúbbi Grindavíkur með styrkveitingu að upphæð 51 milljón króna. Í dag hefur Grindavíkurbær greitt 45.7 milljónir af styrknum. Stjórn Golfklúbbsins kann bæjaryfirvöldum miklar þakkir fyrir rausnarlegt framlag."

Aðrir samningar við Grindavíkurbæ í uppnámi

Árið 2008 sótti þáverandi stjórn um að fá „Rollutúnið til afnota undir par 3 völl sem væri öllum opinn án endurgjalds. Skemmst er frá því að segja að par 3 völlurinn hefur svo sannarlega hitt í mark og reglulega sjást bæjarbúar á öllum aldri rölta um völlinn sér til ánægju við æfingar og leik. Golfklúbburinn samdi við Grindavíkurbæ um viðhald á vellinum í sumar ásamt því að sjá um slátt á púttvelinum við Víðihlíð. Það eitt og sér hefur sannað gildi sitt gagnvart aukinni þjónustu við bæjarbúa og gesti bæjarins og mun eftir sem áður einnig gegna lykilhlutverki í barna- og unglingastarfi klúbbsins. Völlurinn er staðsettur á móti tjaldsvæðinu sem þýðir aukna valkosti fyrir gesti bæjarins varðandi skemmtun og afþreyingu.

Sá samningur ásamt sláttusamningi er nú í uppnámi þar sem Grindavíkurbær hefur hugsað sér að kaupa sláttuvél til að sjá um þau mál sjálfir. Þar reiknast okkur til að rúmlega 2 milljóna rekstrarfé hverfi með þessari ráðstöfun bæjarins. Það er slæmt mál, sérstaklega á þessum tímum sem mikil uppbygging og kostnaður samhliða henni hvílir á golfklúbbnum. Sama gildir um styrktarsamning bæjarins vegna barna og unglingastarfsins. Sú fjárhæð lækkaði úr 1.8 milljónum í 1 milljón þrátt fyrir aukna áherslu golfklúbbsins í uppbyggingastarfi barna og unglinga“.

Í Golfklúbbi Grindavíkur eru nú 209 manns skráðir félagsmenn en í skýrslunni segir að nú hylli undir opnun 18 holu golfvallar á árinu 2012 með hjálp margra góðra manna og aðila.

Skýrsla formanns GG í heild.