GOLFFRÉTTIR
Eitt viðburðarríkasta golfár GS að bakiSæmundur Hinriksson var endurkjörinn formaður Golfklúbbs Suðurnesja á aðalfundi klúbbsins í golfskálanum fyrir skömmu. Á fundinum kom fram að rekstur klúbbsins gekk ágætlega á árinu og var rúmlega 2 milljóna króna hagnaður af rekstrinum. Rekstrartekjur voru rúmar 24 millj. og var tekjuafgangur eftir fjármagnsliði kr. 2.081.871. Dugði það til að mæta þeim fjárfestingum klúbbsins sem ráðist var í og afborgunum af lánum. Langtímaskuldir klúbbsins eru nú rúmar tíu millj. kr.Árið 1998 er trúlega mesta framkvæmda og fjárfestingaár í sögu klúbbsins. Rekstrarafgangur og nýtt lán gáfu rými til að fjárfesta fyrir 8,5 millj. kr. En þá er óupptalið framlag velunnara klúbbsins, sem er vægt áætlað rúmlega tvisvar sinnum þessi tala til viðbótar að því er kom fram í máli framkvæmdastjóra og sagði hann það seint þakkað.Helstu verkþættirnir á árinu voru landvarrnir í Bergvík, Húsasmiðjuhúsið við tíunda teig, göng undir Gerðaveg, boltaskamtari og vélar tengdar honum, sandgeymslur við vélageymslu, innréttingar í vélageymslu, búningsaðstaða í skála, byggðir voru upp nokkrir nýir teigar, manir og hólar, breytingar á sandglompum og margt fleira.Nýliðið golfsumar var viðburðaríkt hjá GS og bar þar hæst Landsmót í golfi sem haldið var á Suðurnesjum með nýju fyrirkomulagi og punkturinn yfir i-ið var bein útsending úr Leirunni síðustu tvo keppnisdagana auk þess sem úrslit voru færð inn á Internetið jafn óðum . Á fundinum voru sýndar teikningar að hugsanlegu framtíðarskipulagi við klúbbhúsið, s.s. á bílastæðum og umhverfi í kring svo og gerð svokallaðrar „rásar“ fyrir framan 16. flöt. Einnig var umræða um félagslífið í klúbbnum sem margir vilja að meiri rækt verði lögð í. Í því sambandi var m.a. rætt um að gera klúbbhúsið hlýlegra með breytingum á aðalsal hússins.Stjórn GS 1999:Formaður: Sæmundur HinrikssonVaraformaður og Form. forgjafarnefndar: Hjörtur KristjánssonRitari: mElsa Eyjólfsdóttir.Gjaldkeri og form. unglinganefnd: Þórður KarlssonForm. mótanefndar: Hafsteinn Sigurvinsson.Form. vallanefndar: Sturlaugur ÓlafssonFormaður húsnefndar: Einar AðalbergssonVarastjórn: Hilmar Björgvinsson, Davíð Jónsson og Sigurður Jónsson. GSÍ hefur gert það að tilllögu sinni að í Leirunni verði haldið Landsmót í holukeppni 4.-6.júní og Landsmót eldri kylfinga 22.-24.júlí, en endanleg staðfesting fæst á golfþingi 6. febr.nk.Fyrirkomulag á sveitakeppni fær væntanlega á sig einhverjar breytingar á þesssu þingi en gert er ráð fyrir að 2.deildin verði í Leirunni 13.-15.ágúst. Eins og menn muna þá féll A-sveitin úr fyrstu deild í aðra, en B-sveitin vann sig upp úr þriðju deild.Stigameistari karla hjá Golfklúbbi Suðurnesja varð Guðjón Kjartansson en stigameistari kvenna Elín Gunnarsdóttir. Stigameistari unglinga varð Atli Már Gylfason. Árangur félaga í GS hefur oft verið betri í Landsmóti en þó náðust tveir titlar. Sigurður Albertsson varð Öldungameistari í sjötta sinn og Arnar Már Elíasson sigraði í 3. flokki karla. Þá vann B-sveit GS í öldungaflokki kvenna í sveitakeppni GSÍ. 120 manns unnu við LandsmótÍ ræðu formanns á aðalfundi GS á dögunum sagði hann að framkvæmd Landsmóts í golfi á Hólmsvelli í Leiru í sumar hafi tekist vonum framar. Hann taldi að um 120 manns hafi unnið við mótsframkvæmd en undirbúningur stóð yfir í ár.Loksins stúlkurFjórtán manna unglingahópur fór á vinabæjarmót á vegum Reykjanesbæjar til Danmerkur á liðnu sumri. Suðurnesjakrakkarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu á mótinu en fimm bæjarfélög á Norðurlöndunum sendu lið til þátttöku. Unglinganefnd og Sigurður Sigurðsson, golfkennari GS náðu saman hóp stúlkna til æfinga síðastliðinn vetur í fyrsta sinn í sögu klúbbsins. Þær skiluðu sér flestar út á völl og var keppt í stúlknaflokki í fyrsta sinn á meistaramóti auk þess sem þær kepptu sumar á vinabæjarmótinu. En það var ekki bara aukning í stúlknagolfi, strákunum fjölgaði verulega og er óhætt að segja að framtíðin sé björt hjá GS.