HSS
HSS

Íþróttir

Golfboltar fljúga í Reykjaneshöll
Föstudagur 16. desember 2011 kl. 10:02

Golfboltar fljúga í Reykjaneshöll

Þótt það sé kuldi, snjór og vetur og Hólmsvöllur í Leiru alhvítur þá láta afrekskylfingar klúbbsins ekki deigan síga og mæta eldsnemma á morgnana og slá hvíta boltann í Reykjaneshöllinni einu sinni í viku. Knattspyrnuhöllin er nýtileg til meira en knattspyrnuiðkunar og hentar mjög vel til golfæfinga.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Erla Þorsteinsdóttir, golfþjálfari og íþróttastjóri GS mætir með krökkunum í höllina en þar er hægt að láta golfboltann fljúga í stóru húsinu. Golfboltarnir eru að vísu nokkuð léttari en þessir hefðbundnu sem fljúga á golfvöllunum en gefa þó góða tilfinningu fyrir höggunum. Einnig nota krakkarnir gerfigrasmottu til að slá á. Æfingarnar byrja á upphitun og jafnvægisæfingum sem eru nauðsynlegar í golfinu. Auk æfinganna í knattspyrnuhöllinni æfa GS kylfingar einnig í inniaðstöðu klúbbsins í gamla fiskvinnsluhúsinu „HF“ í við Hafnargötu í Keflavík. Þar er hægt að pútta og slá í net.

Erla er mjög ánægð með áhugann hjá ungu kylfingunum og segir stefnu klúbbsins að fjölga börnum og unglingum. Markvisst verði unnið að því að kynna íþróttina fyrir þeim. Um tuttugu krakkar eru í svokölluðum afrekshóp sem skiptist í eldri og yngri. Þeir æfa inni í vetur og svo eru krakkarnir að safna fyrir æfingaferð til Spánar sem farin verður í vor.

Jafnvægið æft á grænu grasinu í Reykjaneshöll.

Svo þarf að teigja.

-

Það er heitt og gott að æfa golf í Reykjaneshöllinni og nóg pláss. 

Krakkarnir slá á mottum en boltarnir eru aðeins léttari og fljúga nokkuð minna en þeir venjulegu.