Góður sigur Þróttara
Þróttur í Vogum vann góðan sigur á Fjarðabyggð en liðin mættust í vogum sl. laugardag. Lokatölur urðu 2:1 fyrir heimamenn.
Varamaðurinn Pape mamadou Faye tryggði Þrótti sigur af vítapunktinum á 84. mínútu en Ingvar Á. Ingvarsson skoraði jöfnunarmarkið eftir að gestirnir höfðu náð forystu á 35. mínútu.
Vogaliðið er í 7. Sæti með 8 stig en Víðir í Garði er á toppnum með Selfossi með 13 stig.
Nokkur kunn þjálfaraandlit voru í hópi áhorfenda, m.a. Hólmar Örn Rúnarsson, þjálfari Víðis, Eysteinn Húni Hauksson, þjálfari Keflvíkinga og Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga.