Góður sigur Njarðvíkur í æfingaleik
Knattspyrnulið Njarðvíkur er um þessar mundir í æfngaferð í Hollandi og lék liðið á miðvikudagskvöldið gegn hollenska liðinu Odin 59 á heimavelli en liðið leikur í þriðju deildinni í Hollandi. Gestirnir gátu ekki stillt upp sínu sterkasta liði fyrir leikinn og endaði hann með stórsigri Njarðvíkur 1-5.
Aðstæður í leiknum voru góðar en á síðustu mínútum leiksins fór að rigna, alls eru 22 leikmenn með í æfingaferðinni og komu allir varamenn liðsins inn á í seinni hálfleik nema tveir.
Byrjunarlið Njarðvíkur:
Mathias Rosenörn (m), Arnar Helgi Magnússon, Brynjar Freyr Garðarsson, Neil Slooves, Magnús Þór Magnússon, Luka Jagacic , Andri Fannar Freysson, Stefán Birgir Jóhannesson, Bergþór Ingi Smárason, Atli Freyr Ottesen Pálsson, Kenneth Hogg.
Varamannabekkur Njarðvíkur:
Brynjar Atli Bragason (m), Unnar ElÍ Jóhannesson (m), Theodór Guðni Halldórsson, Ari Már Andrésson, Elvar Óli Einarsson, Arnór Björnsson, Birkir Freyr Sigurðsson, Elís Már Gunnarsson, Jón Gestur Birgisson, Sigurbergur Bjarnason, Krystian Wiktorowicz.
Markaskorarar Njarðvíkur:
Odin59 1 - 5 Njarðvík
0-1 Bergþór Ingi Smárason
0-2 Stefán Birgir Jóhannesson
0-3 Theodór Guðni Halldórsson
0-4 Kenneth Hogg
1-4 Markaskorara vantar
1-5 Stefán Birgir Jóhannesson
Nánar er hægt að lesa um leikinn og æfingaferð Njarðvíkur inn á umfn.is.