Góður sigur Keflavíkur í Eyjum
Keflvíkingar unnu góðan sigur á ÍBV í Landsbankadeild karla í gær, 2-3.
Keflvíkingar byrjuðu mun betur og skoraði Hörður Sveinsson fyrsta mark þeirra strax á 5. minútu etir góða sendingu frá Ingva Rafni Guðmundssyni.
Eftir markið óx heimamönnum ásmeginn og attu nokkur góð færi áður en Steingrímur Jóhannesson jafnaði loks leikin á 23. mínútu. Atli Jóhannesson átti góða aukapyrnu inn í teig þar sem Steingrímur var réttur maður á réttum stað og setti boltann örugglega inn.
Keflvíkingar náðu aftur upp dampi eftir jöfnunarmarkið og sóttu án afláts næstu mínúturnar. Sóknin skilaði loks tilætluðum árangri þegar Guðmundur Steinarsson kom Keflvíkingumn yfir á ný á 33. mínútu. Hann fékk glæsilega sendingu frá Gesti Gylfasyni inn fyrir vörnina og þó að Birkir Kristinsson næði að verja skot hans náði Guðmundur boltanum aftur og skoraði í autt markið.
Rétt fyrir hálfleik áttu Keflvíkingar enn eitt dauðafærið þegar Ingvi var kominn einn inn á móti markmanni, en í stað þess að skjóta sjálfur lagði hann boltann út á Guðmund, en varnarmaður ÍBV vann af honum boltann.
Ingvi bætti þó um betur þegar hann skoraði þriðja mark Keflvíkinga á 4. mínútu seinni háfleiks. Hann fór framhjá varnarmönnum og inn í teiginn þar sem hann afgreiddi boltann snyrtilega í netið.
Þátttöku Ingva lauk þó með heldur óskemmtilegum hætti á 54. mínútu er Páll Þorvarður Hjarðar braut hrottalega á honum þannig að Ingvi fótbrotnaði á tveimur stöðum. Brotið hefði fyllilega verðskuldað brottrekstur, en dómari leiksins, Kristinn Jakobsson, var á öðru máli og lét áminningu nægja.
Leikurinn dalaði nokkuð eftir þetta, en undir lok venjulegs leiktíma var Lewis Dodd, leikmaður ÍBV rekinn af velli eftir glórulausa tæklingu á Hólmar Örn Rúnarsson.
ÍBV klóraði í bakkann eftir lok venjulegs leiktíma þegar Andri Ólafsson skallaði í markið eftir hornspyrnu, en úrslitin voru þegar ráðin.
Fyrsti sigur Keflvíkinga er því í höfn en slæmu fréttirnar eru þær að þeir misstu einn lykilmanna sinna, Ingva Rafn Guðmundsson, sem verður ekki meira með þeim í sumar.
VF-mynd úr leik liðanna í Keflavík í fyrra