Góður rekstur í Leirunni - Sigurður áfram formaður
Rekstur Golfklúbbs Suðurnesja gekk vel á síðasta ári og var Sigurður Garðarsson endurkjörinn formaður á aðalfundi sem haldinn var í golfskálanum í Leiru í gærkvöldi.
Í máli formanns kom fram að starfsemin hafi verið í nokkuð föstum skorðum og reksturinn gengið ágætlega. Tekjuafgangur varð 2,7 milljónir króna. Mótahald gekk afar vel og Hólmsvöllur skartaði sínu fegursta þó þurrkatíð hafi gert vallarstarfsmönnum erfitt fyrir stóran hluta sumars. Í Golfklúbbi Suðurnesja eru rétt rúmlega 500 félagar og hefur sjá fjöldi verið nokkurn veginn sá sami undanfarin ár.
„Með aðhaldssemi, útsjónarsemi og samviskusemi í öllu starfi klúbbsins hefur okkur tekist að gera mikið úr fremur takmörkuðum tekjuramma sem okkur er sniðinn. Nú er svo komið að ár eftir ár, hefur klúbbnum tekist að eiga tekjuafgang í lok árs, sem hægt er að nýta til endurnýjunar á tækjum og minniháttar endurbótum á golfvellinum og aðstöðunni í kingum hann. Það breytir þó ekki því að enn eru fjölmargar nauðsynlegar fjárfestingar sem ekki verður hægt að ráðast í fyrr en hagur klúbbsins vænkast, en þá verður vonandi hægt að ráðast í umfangsmeiri framkvæmdir eins og t.d. vatnsöflun, vökvunarkerfi, uppbyggingu á nýjum flötum og teigum, endurbætur á æfingaaðstöðu og margt, margt fleira. Til þess að ráðast í þessar fjárfestingar af þessari stærðargráðu verður ekki hjá því komist að afla utanaðkomandi aðstoðar, líkt og svo margir klúbbar hafa fengið frá sínum heima sveitarfélögum. Það er einlæg von okkar að brátt fari aðstæður í rekstri sveitarfélaga að batna þannig að við getum sóst aftur eftir stuðningi þeirra. Við skulum allavega ekki láta okkar eftir liggja og munum áfram reka klúbbinn með ábyrgum hætti, stefna að fjölgun klúbbfélaga, og frekari uppbyggingu á íþróttastarfinu. Þannig vonumst við til að skilningur á mikilvægi starfsemi golfklúbbsins aukist.
Golfklúbbur Suðurnesja er gott og sterkt félag sem gengið hefur farsællega á undanförnum 48 árum í sögu klúbbsins. Mörgu hefur verið komið í verk á þessum tíma, og ber þar fyrst að nefna okkar frábæru golfparadís í Leirunni, auk meistaratitla fyrri tíma sem afreksfólk klúbbsins hafa bætt í heiðurssafn klúbbsins. Brátt kemur að 50 ára afmæli klúbbsins sem eru stór tímamót. Enn er fjölmörgum verkefnum ólokið og einkar spennandi væri að tengja saman þessi tímamót og tímahvörf í starfi klúbbsins. Á tímamótum sem þessum væri t.d. gaman ef við gætum séð einhverja meiriháttar umbætur eiga sér stað á golfvellinum, eða aðstöðunni í kringum hann. En til þess þurfum við aðstoð,“ sagði formaður GS.
Jóhann Magnússon, formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar hrósaði klúbbnum fyrir frábært starf og rekstur undanfarin ár og benti á að GS væri með lægstu æfingagjöld félaga innan ÍRB.
Stjórn GS er óbreytt en einn nýr félagi kom inn í varastjórn:
Formaður: Sigurður Garðarsson
Varaformaður: Páll Ketilsson
Ritari: Þröstur Ástþórsson
Gjaldkeri: Karitas Sigurvinsdóttir
Meðstj.: Davíð Viðarsson, Hafdís Ævarsdóttir og Heimir L. Hjartarson.
Varamenn: Gylfi Kristinsson, Örn Ævar Hjartarson og Hilmar Björgvinsson.