Bygg
Bygg

Íþróttir

Góður árangur hjá Suðurnesjamönnum í sundmóti SH
Þriðjudagur 28. október 2008 kl. 08:52

Góður árangur hjá Suðurnesjamönnum í sundmóti SH

Sundmót SH fór fram um helgina í nýrri og glæsilegri sundlaug Hafnarfirði og voru keppendur frá ÍRB og UMFG á meðal þátttakenda. Nokkur hluti af sundmönnum elsta hóps ÍRB tók þátt í mótinu og var árangurinn góður. Ekki voru veitt verðlaun fyrir hverja grein, en átta stigahæstu sundmenn í karla- og kvennaflokki fengu bikar að launum. Þar áttu ÍRB-ingar þrjá fulltrúa, það voru þau Jóna Helena Bjarnadóttir sem hafnaði í 8. sæti, Diljá Heimisdóttir sem var í 7. sæti og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson sem varð stigahæstur í karlaflokki.

Talsvert var um bætingar hjá sundmönnunum og lofar það góðu um framhaldið, en Íslandsmeistaramótið í 25m laug fer fram eftir tæplega mánuð. Yngri hópurinn keppir síðan um næstu helgi á sundmóti Fjölnis í Reykjavík.



Sunddeild UMFG var einnig með keppendur á mótinu og Hilmar Örn Benediktsson náði þrisvar á verðlaunapall og náði A.M.K. 1 lágmarki á Íslandsmótið í 25m laug. Erla Sif Arnardóttir og Sunneva Jóhannsdóttir í úrslit í sínum greinum. Flestir keppendur frá UMFG voru að bæta sig, en mikill uppgangur hefur verið í íþróttinni í Grindavík á síðustu misserum.

Mynd/umfg.is: Hilmar Örn Benediktsson stóð sig vel um helgina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn