Góður árangur hjá fimleikastelpum úr Keflvík
Keppendur fimleikadeildar Keflavíkur stóðu sig vel á Íslandsmeistaramótinu í stökkfimi sem fór fram á Akureyri síðasta laugardag.
Lovísa Andrésdóttir varð Íslandsmeistari í A-flokki 12 til 13 ára á dýnu og Thelma Rún Eðvaldsdóttir lenti í öðru sæti, ásamt því að ná öðru sæti í samanlögðum árangri. Í sama flokki varð Andrea Dögg Hallsdóttir í öðru sæti á trampolíni.
Alma Rún Jensdóttir varð Íslandsmeistari á trampolíni í A flokki 14 til 15 ára og í samanlögðum árangri ásamt því að ná öðru sæti á dýnu. Tanja Ýr Ásgeirsdóttir varð í þriðja sæti á dýnu í B flokki 14 til 15 ára.
Í opnum flokki 16 ára og eldri hlaut Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman annað sætið á dýnu, trampólíni og í samanlögðum árangri. Í tilkynningu frá fimleikadeild Keflavíkur segir að greinilegt sé að framtíðin hjá deildinni sé björt og að árangurinn á Akureyri gefi góð fyrirheit fyrir komandi keppnistímabil. Næsta mót á dagskrá fimleikadeildarinnar er Haustmót í hópfimleikum helgina 20. til 22. nóvember á Akranesi.