Góður árangur Grindvíkinga í taekwondo
Bikarmót barna í taekwondo fór fram um síðastliðna helgi hjá Ármanni í Laugardal. Um 100 börn á aldrinum 5-11 ára skráðu sig til leiks og er óhætt að segja að Grindvíkingar hafi staðið sig feikna vel.
Sex Grindvíkingar tóku þátt í mótinu og náðu þeir allir á pall í báðum keppnisgreinum en keppt var í bardaga annars vegar og í tækni formum hins vegar sem eru samsettar hreyfingar sem tákna bardaga við ímyndaðan andstæðing.
	Árangur strákanna var eftirfarandi:
	
	Tómas Máni Bjarnason - Gull í tækni og gull í bardaga.
	Viktor Veigar Egilsson - Brons í tækni og brons í bardaga.
	Óliver Adam Einarsson - Silfur í tækni og brons í bardaga.
	Fjölnir Z Þrastarson - Brons í tækni og silfur í bardaga.
	Sigurbjörn Gabríel Jónsson - Gull í tækni og brons í bardaga.
	Róbert Árnason - Brons í tækni og silfur í bardaga.
Flottur árangur hjá strákunum og taikwondo deild Grindavíkur og er greinilegt að framtíðin er björt á bæ.


 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				