Íþróttir

Góður árangur á haustmóti í fimleikum
Stúlkurnar í Fimleikadeild Keflavíkur.
Þriðjudagur 25. nóvember 2014 kl. 10:18

Góður árangur á haustmóti í fimleikum

- hjá Fimleikadeild Keflavíkur

Um nýliðna helgi fór fram haustmót í hópfimleikum á Selfossi. Fimleikadeild Keflavíkur sendi þangað eitt lið til keppni í 3. flokki. Var þetta fyrsta hópfimleikamótið sem þessi efnilegi hópur tók þátt í. Árangurinn var góður og hópurinn á eflaust eftir að gera góða hluti í framtíðinni. Þær enduðu í 14. sæti af 17 liðum og fengu 9,666 fyrir dýnuæfingar, 10,466 fyrir æfingar á trampólíni og svo 9,833 fyrir dansinn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024