Góðu starfsári yngri flokka lokið hjá Njarðvík
Nú í lok fótboltaleiktíðar hafa Njarðvíkingar gert samantekt á gengi yngri flokka félagsins í sumar og metið hvernig til tókst.
Þátttaka Njarðvíkur í mótum var svipuð og undanfarin ár og árangur yngri flokka var með því besta þegar yfir heildina er litið miðað við síðustu ár. Alls voru um 140 börn og unglingar við æfingar frá 3. flokki drengja og niður í yngsta flokkinn.
3. flokkur félagsins kom mjög á óvart á sl. sumri. Strákarnir náðu í alls 27 stig á Íslandsmótinu og lentu í fjórða sæti í C- riðli. Þeir voru að ná mjög góðum úrslitum gegn liðum sem þeir höfðu til þessa ekki átt erindi gegn. Þeir mættu vel á allar æfingar og sýndu mikla þolinmæði og uppskáru samkvæmt því í sumar með því að leika góðan bolta sem eftir var tekið af þeim sem lengst hafa fylgst með þeim, foreldrum og þjálfara.
4. flokkur skilaði einnig góðum árangri. Unnu C-riðil Íslandsmótsins og lentu í umspili um að komast í úrslit Íslandsmótsins. Það tókst að vísu ekki, en sigurinn í riðlinum lyfti þeim upp í B riðil næsta sumar. Það var einmitt markmiðið þar sem von er á stórum hópi í flokknum næsta sumar og verkefni verða vonandi næg.
5. flokkur náði besta árangri sem flokkur frá Njarðvík hefur náð í Íslandsmóti, þegar flokkurinn náði alla leið í undanúrslit Íslandsmótsins þar sem liðin töpuðu naumlega fyrir Skagamönnum. Einnig lék lið 5. flokks til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn innanhúss þar sem drengirnir töpuðu einnig naumlega fyrir Skagamönnum. Flokkurinn sigraði B riðilinn og færist upp í A riðil á næsta sumri.
6. flokkur í ár var einn sá fámennasti sem Njarðvíkingar hafa átt í mörg ár, og háði það honum talsvert. Stærsta verkefni flokksins var Shellmótið í Eyjum og erfitt fyrir þennan flokk vegna smæðar að fara og leika eftir afrek síðustu tveggja ára á því móti. Fámennið í þessum flokki skapast vegna þess að hér eru um mjög litla árganga í Njarðvíkurhverfi.
Í 7. flokki Njarðvíkur er að myndast sterkur kjarni drengja og voru þar um 30 strákar sem er talinn mjög góður fjöldi til að byggja á í framtíðinni.
Á starfsárinu hófu Njarðvíkingar að vinna sérstaklega í flokki fyrir stúlkur eftir nokkurra ára hlé. Verkefnið fór rólega á stað og var ekki verið að hlaða of miklum verkefnum á þær. Milli 15 og 20 stúlkur hafa stundað æfingar í sumar og var hápunktur sumarsins þátttaka í Gullmótinu í Kópavogi þar sem þær stóðu sig vonum framar. Það er ætlun félagsins að halda áfram að byggja upp stúlknaboltann en til þess að svo geti orðið þarf að treysta á virka þátttöku hjá stúlkunum og að forráðamönnum þeirra.
Texti og myndir: umfn.is