Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

  • Góðir gestir hjá afreksíþróttafólki í FS
  • Góðir gestir hjá afreksíþróttafólki í FS
    Heimir Hallgrímsson heimsótti knattspyrnufólk FS.
Miðvikudagur 19. febrúar 2014 kl. 10:06

Góðir gestir hjá afreksíþróttafólki í FS

Í vetur er í annað sinn boðið upp á afreksíþróttalínu fyrir þá nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem vilja stunda íþrótt sína með álagi afreksíþróttamanna, samhliða krefjandi bóknámi. Hópurinn hittist á snemma á morgnana fjóra daga vikunnar áður en hefðbundið bóknám hefst.

Á afreksíþróttalínunni hefur verið lögð áhersla á að fá gestaþjálfara- og fyrirlesara í heimsókn og á þessari önn hafa nemendur fengið góða gesti. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari í knattspyrnu heimsótti knattspyrnumennina og stýrði einni æfingu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og núverandi þjálfari ÍBV, kom einnig í heimsókn og flutti fyrirlesturinn „Hvað þarf til þess að verða afreksíþróttamaður?“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nú er 41 nemandi skráður á línuna en það eru 26 knattspyrnumenn og 15 í bardagaíþróttum, þ.e. taekwondo, júdó og hnefaleikum. Fótboltadrengirnir koma úr nokkrum félögum; Keflavík, Njarðvík, Reyni, Víði og FH.  Þjálfarar eru þeir Guðni Kjartansson og Gunnar Magnús Jónsson. Í bardagaíþróttunum eru 3 stelpur og 12 drengir en þar þjálfa Helgi Rafn Guðmundsson taekwondo, Guðmundur Stefán Gunnarsson jódó og Björn Snævar Björnsson hnefaleika. Auk æfinga er einnig boðið upp á fyrirlestra og fræðslu en þá er allur hópurinn saman.