HSS
HSS

Íþróttir

Þriðjudagur 12. mars 2002 kl. 11:35

Góðir gestir á æfingu hjá 8.flokki í Keflavík

8.flokkur karla í Keflavík í körfu fékk aldeilis góðan gest á æfingu hjá sér í gærkvöldi en það var enginn annar en hinn frábæri körfuknattleiksmaður Logi Gunnarsson úr Njarðvík. Hann sagði sína sögu, hvernig þrotlausar æfingar skila sínu, að vera alltaf að, ekki síst á sumrin við að bæta bolta og skottæknina og síðast en ekki síst kom hann inná mikilvægi þess að menn passi að vera ekki síður góðir námsmenn en körfuboltamenn ef hugurinn stefnir út í heim í. Einnig sýndi hann margar af þeim boltaæfingum sem hafa skilað honum árangri og leiðbeindi í gegnum þær. Sannarlega stórkostlegur körfuboltamaður þarna á ferð og ekki síður drengur góður.
Eitthvað hafði kvisast út um komu hans því óvenju gestkvæmt var á æfingunni - þarna voru strákar úr 7.flokki ásamt stelpum úr 8. og 9. flokki.
Þetta var sannarlega eitthvað sem krakkarnir kunnu að meta og vonandi byrja þau strax á morgun að gera æfingarnar sem hann var að kenna þeim, því hver veit nema hann líti við aftur og þá væri nú gaman að geta sýnt framfarir.
Logi fær bestu þakkir frá strákunum í 8. flokk fyrir þann mikla heiður að fá hann til að koma á æfingu hjá þeim.
Bílakjarninn
Bílakjarninn