Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Góð frammistaða sundamanna ÍRB í Serbíu
Miðvikudagur 8. ágúst 2007 kl. 13:30

Góð frammistaða sundamanna ÍRB í Serbíu

Sundfólkið Gunnar Örn Arnarson, Soffía Klemenzdóttir og Svandís Þóra Sæmundsdóttir frá ÍRB kepptu á Ólympíudögum Evrópuæskunnar sem fram fóru í Belgrad í Serbíu fyrir skemmstu. Keppt var við erfiðar aðstæður ytra, gríðalegur hiti í mikilli hitabylgju. Hiti allt upp í 50 gráður og þar sem sundmennirnir gistu var ekki loftkæling sem verður að teljast frekar óþægilegt og erfitt yfir vikutíma.

Gunnar Örn keppti í 200m bringusundi 2.32.91 (+1,5) og 400m fjórsundi (-6,3) sem er frábær bæting hjá honum. Svandís synti 200m flugsund (+2,0) 17. sæti og eingöngu 3/100 frá b-úrslitum, einnig var hún í boðsundsveit Íslands í 4 x 200m skriðsundi þar sem hún synti á sínum besta tíma 2,15,62.

Soffía keppti í flestum greinum allra íslensku sundmannanna og úrslit hennar voru sem hér segir, 100m skriðsund (+0,6), 100 flugsundi (+0,4).  Hún komst hinsvegar í B-úrslit í 200 metra fjórsundi 2.30.58 (+2,1) en gerði ógilt í því miður ógilt í úrslitasundinu. Hún var síðan einnig dæmd ógild í undanrásum 400m fjórsundins fyrir sama tækniatriðið þ.e. skiptingu úr baki í bringu þar sem hún átti að hafa verið komin yfir 90 gráður á bakinu áður en snerting átti sér stað. Samkvæmt þeim tíma sem hún var að synda þar ef sundið hefði verið gilt þá hefði hún einnig náð B-úrslitum í þeirri grein sem hefði verið frábært hjá henni.

Fínn árangur hjá sundfólkinu sem var að feta ein af sínum fyrstu sporum í sundkeppnum á alþjóðavettvangi og mikilvæg reynsla inn í feril þeirra.

www.keflavik.is


 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024